Prófíll

  • Nafn: Benedikta G. Kristjánsdóttir
  • Staður: Weimershof
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: 19 ára stelpa, sem er að hefja lögfræðinám (B.A) í Háskólanum í Reylkavík :)

Auglýsing

Afmæli!

Ég fer í jólafrí til Lúx! :)

Ég fer heim frá Lúx

04.01

04. janúar 2009 klukkan 21:11
Jæja... 2009 komið, vonandi verður það betra en 2008, þó að 2008 hafi nú verið ágætt hjá mér, ég fékk að lifa þægilegu lífi heima hjá mömmu og pabba fyrri hluta árs útí Lúxemborg, og fékk að ferðast til Túnis, London og helling af stöðum í Þýskalandi og Frakklandi. Svo kom ég heim, og eftir 'smá' veikindavesen í sirka mánuð mætti ég sterk inn í lögfræðina á haustönn í HR. Það nám hefur farið fram úr öllum mínum væntingum, ég hef aldrei upplifað jafn mikla spennu að vera að fara að byrja nýja önn eins og núna, því ég veit hversu góðir kennararnir verða, hversu spennandi fögin verða og ég VEIT hvað það eru æðislegir og skemmtilegir krakkar með mér í bekk :D Ég ætla að vera enn duglegri þessa önnina að mæta í allar þær vísindaferðir og nemendauppákomur sem ég kemst í, þær gera skólalífið ennþá skrautlegra :)

Áramótin voru ágæt, við fórum í dinner til pabba hans Agga og konunnar hans útá Álftanesi, skemmtum okkur mjög vel :) Ég var búin að missa röddina algjörlega um 1 leytið, þannig að við fórum bara heim :P ekkert rosa djamm það kvöldið :D Núna á föstudaginn ákváðum við hinsvegar að gera eitthvað, og á slaginu 4 um daginn ákváðum við að halda partý um kvöldið og kl.9 vorum við komin með helling af góðum vinum í heimsókn :D Gaman að geta tekið svona skyndiákvörðun og samt fengið til sín góðan hóp af skemmtilegu fólki :) Það voru blandaðar Capirihnas og Strawberry Daquiris, skotum af Gulum Boxhanska dreyft um, og sopið á hvítvíni og bjór og spilað helling af Wii :D Nokkrir fengu meira að segja hinar margfrægu Wii-sperrur, þrátt fyrir að mér hefði ekki verið trúað fyrst þegar ég sagði frá þeim :P

Við kíktum svo niðrí bæ um kvöldið, ég, Aggi, Sunna, Andri og Dóri. Við byrjuðum á Glaumbar, þar sem vinur Andra og Dóra er að vinna í hurðinni,´eg fékk því hamingju-afmælisóskir frá öllum dyravörðunum :P Svo kíkti þessi vinur Andra til okkar þegar við vorum inná staðnum og rétti mér staup, sem 'afmælisgjöf'. Þannig lærði ég af sárri reynslu að taka aldrei aftur við staupum sem ég veit ekki hvað er, því þarna prófaði ég 'Flatliner' í fyrsta skipti. Hvílíkur viðbjóður, ég hélt það væri kviknað í mér þegar ég tók það.... Flatliner er semsagt - Tequila, Sambucca og Tabasco sósa, mitt var með extra tabasco í tilefni dagsins eða eitthvað :P ég fór inná klósett og lá undir krananum að drekka í svona korter :P shiit..

Núna er ég bara á fullu að reyna að klára afmælisundirbúning, og er búin að negla niður dagsetninguna, þetta verður 9.jan (næsta föstudag) á Glaumbar. Ég veit reyndar ekki alveg klukkan hvað fjörið á að byrja, en vinir og vandræðamenn munu fá boðskort með nánari upplýsingum í vikunni. Ef að einhver sem ég þekki gleymist, þá þekkið þið númerið mitt/emailið og látið mig bara vita að ég hafi gleymt ykkur, það verður líkelgast gestalisti, þannig að ég vil endilega fá að vita ef ég hef gleymt einhverjum :)

Until next time...
Benedikta
Ég sé sko ekki að þú getir kvartað neitt yfir 2008, ef þú telur að svo sé þá ertu of góðu vön ;)
Föstudagskvöldið þarna hljómar mega vel en wii sperrur eru því miður staðreynd :P Ugh ugh ugh... já, borgar sig greinilega ekki að drekka e-ð sem þú veist ekki hvað inniheldur, ojbara.
Hljómar btw eins og góð hugmynd að hafa gestalista...

knús :D
#1
04. janúar 2009 klukkan 22:14
hehe ég á eftir að fá að kynnast wii sperrunum hehe og vá verður gaman á föstudaginn eða hvað!
#2
04. janúar 2009 klukkan 23:11

Skrifa athugasemd

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Veðrið í Lúx

The WeatherPixie

Innskráningar kubbur