Prófíll

  • Nafn: Benedikta G. Kristjánsdóttir
  • Stađur: Weimershof
  • Hjúskaparstađa: Á föstu
  • Um mig: 19 ára stelpa, sem er ađ hefja lögfrćđinám (B.A) í Háskólanum í Reylkavík :)

Auglýsing

Afmćli!

Ég fer í jólafrí til Lúx! :)

Ég fer heim frá Lúx

04.02

04. febrúar 2009 klukkan 10:30
Jæja, kominn sléttur mánuður á milli færslna hjá mér... nokkuð gott! :P

Ég á það til að gleyma að ég eigi bloggsíðu, held líka að flestir sem lesa þessa síðu hafi mig líka sem vin á facebook, sem er mun hentugri leið til þess að fylgjast með því hvað ég er að gera af mér hverju sinni...
Mig er reyndar farið að gruna að ég sé haldin facebook fikn, tíminn sem ég eyði á þessum blessaða vef er farinn að verða hættulega stór hluti dags hjá mér, spurning um að maður fari í smá fésbókar-straff svona rétt á meðan á miðannarprófunum stendur. (miðannarpróf í febrúar er BTW algjört rugl...)

Það er mikil aga-þjálfun í gangi hjá mér þessa dagana, þarf að hafa mig alla við til að hlaupa ekki út í bókabúð og versla mér 'Eclipse' (3ju bókina í Twilight bókaflokknum). Þessar bækur eru svo hættulega ávanabindandi að það er ekki eðlilegt, ég þori ekki að kaupa mér næstu bók fyrr en prófin eru búin því ég veit að ef ég hef hana innan seilingar mun ég örugglega falla frá fögrum loforðum um námsbókalestur og lesa hana í staðinn :)

Annars sit ég akkúrat þessa stundina í Stjórnsýsluréttar-tíma, og geri mitt besta til að láta kennarann ekki rugla mig, það er mjög sérstakt með þessa tíma, að þegar ég les efnið heima er þetta svo skýrt og þægilegt efni, en svo kemur kennarinn með sína undarlegu setningar-uppbyggingu, talar í hringi og bullar og maður verður einungis ruglaðri fyrir vikið. Held ég treysti frekar bókunum heldur en hring-tali kennarans, ég hélt einmitt að kennsla ætti að skýra námsefnið ekki flækja það.

Ég held ég láti þetta örblogg duga í bili, og reyni svo að muna eftir því á næstunni að ég eigi eitt stykki bloggsíðu...

-Benedikta

04.01

04. janúar 2009 klukkan 21:11
Jæja... 2009 komið, vonandi verður það betra en 2008, þó að 2008 hafi nú verið ágætt hjá mér, ég fékk að lifa þægilegu lífi heima hjá mömmu og pabba fyrri hluta árs útí Lúxemborg, og fékk að ferðast til Túnis, London og helling af stöðum í Þýskalandi og Frakklandi. Svo kom ég heim, og eftir 'smá' veikindavesen í sirka mánuð mætti ég sterk inn í lögfræðina á haustönn í HR. Það nám hefur farið fram úr öllum mínum væntingum, ég hef aldrei upplifað jafn mikla spennu að vera að fara að byrja nýja önn eins og núna, því ég veit hversu góðir kennararnir verða, hversu spennandi fögin verða og ég VEIT hvað það eru æðislegir og skemmtilegir krakkar með mér í bekk :D Ég ætla að vera enn duglegri þessa önnina að mæta í allar þær vísindaferðir og nemendauppákomur sem ég kemst í, þær gera skólalífið ennþá skrautlegra :)

Áramótin voru ágæt, við fórum í dinner til pabba hans Agga og konunnar hans útá Álftanesi, skemmtum okkur mjög vel :) Ég var búin að missa röddina algjörlega um 1 leytið, þannig að við fórum bara heim :P ekkert rosa djamm það kvöldið :D Núna á föstudaginn ákváðum við hinsvegar að gera eitthvað, og á slaginu 4 um daginn ákváðum við að halda partý um kvöldið og kl.9 vorum við komin með helling af góðum vinum í heimsókn :D Gaman að geta tekið svona skyndiákvörðun og samt fengið til sín góðan hóp af skemmtilegu fólki :) Það voru blandaðar Capirihnas og Strawberry Daquiris, skotum af Gulum Boxhanska dreyft um, og sopið á hvítvíni og bjór og spilað helling af Wii :D Nokkrir fengu meira að segja hinar margfrægu Wii-sperrur, þrátt fyrir að mér hefði ekki verið trúað fyrst þegar ég sagði frá þeim :P

Við kíktum svo niðrí bæ um kvöldið, ég, Aggi, Sunna, Andri og Dóri. Við byrjuðum á Glaumbar, þar sem vinur Andra og Dóra er að vinna í hurðinni,´eg fékk því hamingju-afmælisóskir frá öllum dyravörðunum :P Svo kíkti þessi vinur Andra til okkar þegar við vorum inná staðnum og rétti mér staup, sem 'afmælisgjöf'. Þannig lærði ég af sárri reynslu að taka aldrei aftur við staupum sem ég veit ekki hvað er, því þarna prófaði ég 'Flatliner' í fyrsta skipti. Hvílíkur viðbjóður, ég hélt það væri kviknað í mér þegar ég tók það.... Flatliner er semsagt - Tequila, Sambucca og Tabasco sósa, mitt var með extra tabasco í tilefni dagsins eða eitthvað :P ég fór inná klósett og lá undir krananum að drekka í svona korter :P shiit..

Núna er ég bara á fullu að reyna að klára afmælisundirbúning, og er búin að negla niður dagsetninguna, þetta verður 9.jan (næsta föstudag) á Glaumbar. Ég veit reyndar ekki alveg klukkan hvað fjörið á að byrja, en vinir og vandræðamenn munu fá boðskort með nánari upplýsingum í vikunni. Ef að einhver sem ég þekki gleymist, þá þekkið þið númerið mitt/emailið og látið mig bara vita að ég hafi gleymt ykkur, það verður líkelgast gestalisti, þannig að ég vil endilega fá að vita ef ég hef gleymt einhverjum :)

Until next time...
Benedikta

28.12 -Afmćliđ mitt :)

28. desember 2008 klukkan 13:39
Jæja, þá er ég loksins orðin tvítug :) Skondið að maður nái afengiskaupa-aldrinum í landi þar sem maður má versla sér áfengi 16 ára.

Ég er búin að vera hérna í lúxusnum hjá mömmu og pabba í 9 daga, og langar sko ekkert heim á morgun :( Þetta frí og þessi jól eru búin að vera yndisleg í alla staði :) Við kíktum til Trier morguninn eftir að við komum út, til að kaupa seinustu jólagjafirnar. Á Þorláksmessu kíktum við svo til Bruges, eftir að hafa séð myndina 'In Bruges' með Colin Farrel ákváðum við að það væri vel þess virði að keyra í 3 tíma til að sjá þá borg :) Við urðum ekki fyrir neinum vonbrigðum þar, borgin var alveg ótrúlega falleg, búðirnar frábærar og maturinn góður :) Aksturinn var lítið mál líka, þar sem Volvo-inn er alveg ótrúlega góður ferðabíll, og þrátt fyrir að við værum sex talsins þá var það nú ekkert óþægilegt heldur :) Pabbi var líka dauðfeginn að fá Agga með sem co-driver, en þeir skiptu ferðinni jafnt á milli sín, svo hvorugur þyrfti að keyra alla leiðina.

Aðfangadagur var alveg ótrúlega kósí, bara taka því rólega heima með fjölskyldunni og allir að hjálpast að við jólaundirbúninginn. Þessvegna var enginn ofurþreyttur þegar loksins kom að því að setjast til borðs, þannig að allir gátu notið sín til hins ýtrasta. Eftir að hafa gúffað okkur svoleiðis út af Kalkúni með púrtvínssósu, sætkartöflumús og waldorfssalati (sleeeef) tókum við krakkarnir til eftir matinn en sendum gamla settið og ömmu út í smá göngutúr. Pakkarnir voru ekkert smá vel heppnaðir, það var svo gaman hvað allir hittu vel á með gjafir og allir voru himinlifandi :) Skemmtilegt líka að sjá þróunina með árunum, þar sem hlutföll pakkanna jafnast út, loksins eru mamma og pabbi farin að fá næstum því  jafn margar gjafir og við krakkarnir :D Ég var ekkert smá sátt með mínar gjafir, og eiginlega hálf orðlaus yfir öllum gjöfunum sem ég fékk! Stærsta gjöfin mín var eitt stykki Wii leikjatölva frá mínum yndislegu foreldrum, og mér brá svo þegar ég opnaði pakkann að ég kom varla upp orði :P Þessi tölva er búin að vera í stanslausri noktun núna síðan, með systkini mín og Agga nánast spilandi langt fram á nótt :D ´ótrúlega skemmtilegt tæki :)

Aggi gaf mér svo gullfallegt GUESS úr sem mig er búið að langa í síðan í janúar :P Hann náði samt aðeins að snúa á mig, því hann merkti pakkann eins og hann hefði komið frá litla bróður mínum, sem gerði mig örlítið ringlaða þangað til að ég fattaði að þetta hefði verið að villa um fyrir mér :D

Svo er það víst afmælið mitt í dag, ég er eiginlega búin að fá tvöfaldan afmælisdag, þar sem mamma og pabbi gáfu mér afmælisgjöfina mína í gær, fékk svart leður GUESS veski (hmmm.. ætli fjölskyldan viti hvað sé uppáhaldsmerkið mitt?? :D ) og svo um kvöldið fórum við út að borða á mjög töff stað í Kirchberg sem heitir 'The Last Supper'. Maturinn var alveg geðveikt góður, og skemmtilegt að allir voru ánægðir með það sem þeir pöntuðu :) Ég fékk steikta andabringu með Foie Gras (kallaðist eitthvað Portefeuille de Canette) og fengum alveg yndislegt rauðvín með matnum. Ég held að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ég náði að klára af disknum á Lúxembúrgísku veitingahúsi, mjög passlegir skammtar þarna hjá þeim, maður stóð nánast á blístri eftir máltíðina, en var fljótur að jafna sig :)

Ég og Aggi kíktum eftir matinn í nýja skemmtistaða 'hverfið' í Clausen. Þetta er frekar töff concept, þetta eru allt nýbyggingar, og þetta eru basically fullt af skemmtistöðum byggðir í kringum torg, þannig að maður er einungis 1mín á milli staða. Skemmtilegt að geta bara staðið í miðjunni og valið stað eftir því hvernig stuði maður er :D Við kíktum inná rosa skondinn stað sem heitir King Wilma, og er innréttaður eins og í Flinstones, við erum að tala um risa bein, viðardrumba, steinbekki og dýrsfeldi, mjög töff :D Ég held að þetta sé algjörlega á djamm-planinu hjá okkur ef við komum til lúx næsta sumar, þar sem þá verða sett borð útá torgið frá skemmtistöðunum, og örugglega hellings stuð þarna :D

Í kvöld er svo planið að kíkja á Chi-chi's, verðum að ná því áður en við förum heim á morgun, ég fer sko ekki héðan án þess að hafa fengið Strawberry margaritas!! :D

Annarrs er í skipulagningu afmælispartý þegar ég kem heim, og munu allir vinir og vandræðamenn látnir vita nánar af því þegar nær dregur ;)

-Benedikta
(og hundskist svo til að kommenta! :P)

Jólafrííííí!!!

16. desember 2008 klukkan 23:02
Loksins loksins loksins... eftir stanslausan prófalestur í nánast mánuð er ég loksins komin í laaaaangþráð jólafrí!! Thankyou and goodnight!

Ég naut þess eftir prófið að fara heim og SOFA.. var að læra frá 8-20 í gær, reyndi svo að sofa aðeins, sme gekk ekki, þannig að ég var mætt aftur upp í skóla að læra kl.2 um nótt, og las þangað til prófið mitt var kl.8.40. Ég var vopnuð RedBull, en ég endaði með þvi að drekka hann ekki, því stressið sá sko alveg um að halda mér glaðvakandi! :D

Eftir blundinn, sem var meganæs þar sem ég hef ekki sofið almennilega í langan tíma, kíkti ég í smá verslunarleiðangur, kláraði að versla nokkrar jólagjafir og kíkti svo aðeins til Ömmu í smá spjall. Það var rosa kósí, hef ekki hitt hana í svo langan tíma :/ Þannig að ég var svoleiðis troðin út af laufabrauði, smákökum og konfekti þegar ég loksins fór heim aftur :P

Svo er planið bara jólatiltekt á morgun, og pakka niður í töskur, redda seinustu hlutunum og svona. Svo þann 18. verðum við Aggi búin að vera saman í 4 ár :) Ætlum líklegast að kíkja eitthvað út að borða um kvöldið til að fagna því :P Það verður svo rise and shine mjög snemma morguninn eftir, en flugið okkar til frankfurt er kl.8 að morgni þess nítjánda.

Læt þetta duga í bili.... ætla að koma mér aftur í að slappa af og EKKI lesa neitt :P
-Benedikta

09.12

09. desember 2008 klukkan 13:45
Heyrðu mig nú... ég nenni sko ekkert að blogga ef það kommentar enginn! :P Við erum að tala um það að yfir 40 heimsóknir hafa komið á síðuna seinustu 9 daga, en enginn er búinn að kommenta.. iss!

En jæja, ég var að klára stjórnskipunarrétt í morgun, nokkuð sátt bara, gekk held ég ágætlega... þó veit maður aldrei með þetta fag fyrr en einkunnin er komin.... einkunnagjöfin getur verið frekar undarleg hjá þeim... ég vissi heldur ekki hvert ég ætlaði þegar ég sá að krossaspurningarnar höfðu fleiri en einn réttan svarmöguleika... það er einum of mikið fyrir mig! :D ég verð svo stressuð yfir að gleyma einhverju.. jafnvel þótt maður sé búinn að finna 'réttan' svarmöguleika.. þá gætu verið fleiri :P

Annars bara skrifaði ég eitthvað um 5 bls... svoleiðis tætti af mér dómana um jafnræði og þjóðaréttarsamninga í sambandi við verkefnið og já... kláraði hálftíma fyrr.. eins og vanalega get ég aldrei setið út allan tímann í prófi :D

Nú hef ég nokkra daga til að læra fyrir bókhald, sem verður á laugardaginn, og þá verður það bara aðferðafræði (almenn lögfræði) á þriðjudaginn og þá verð ég komin í langþráð jólafrí!! :D Sem verður ansi veglegt... er í fríi frá 16.des til 12.jan... næstum mánuður bara :D Held ég reyni að nota fríið bara til að byrja að lesa fyrir næstu önn.. verður örugglega þægilegt að vera búin með megnið af lesefninu áður en skólinn byrjar, ætti að taka álagið aðeins af manni :)

Jæja, ég ætla að koma mér aftur uppí skóla og byrja að reikna eitthvað fyrir bókhaldið... bara vika í jólafrí..
-Benedikta

30.11

30. nóvember 2008 klukkan 22:53
Böggandi, fínu myndirnar sem ég setti inn í síðasta blogg neituðu að virka almennilega, 2 af fjórum náðu yfirleitt ekki að birtast... :/ oh well..

Jæja, smá prófastress farið að birtast, fyrsta prófið verður á fimmtudaginn, fjármunaréttur I (skaðabóta-, samninga-, kröfu- og viskiptabréfaréttur) fönn stöff.... þetta verður svo allt búið (thankfully) þann 16. en það er ég í munnlegu prófi í aðferðafræði.. vona bara að ég komi upp einu orði eða svo í því :D þetta reddast vonandi :P

Þannig að það verður bara lestur og lærDÓMUR næstu dagana... ekki búast við að sjá mikið af mér! :P Vá hvað ég ætla samt að njóta þess í botn þegar þetta verður búið, ætla að taka því geðveikt rólega og njóta jólastemningarinnar í botn með familíunni :)

jæja, sjáumst eftir 15 daga....

Laganemadýrið

24.11

24. nóvember 2008 klukkan 20:30
Haha :D Margt getur breyst á örfáum árum :D

2003

2008

Ég og Aggi Krútt..  Útskrift Salóme stóru sys 2004

Við skötuhjúin orðin örlítið eldri, útskriftin mín 2007 :)

Fannst þetta bara svolítið skondið að skoða hvað maður getur breyst á tiltölulega stuttum tíma.. jiiminn eini hvernig ætli þetta endi?! :D

22.11

22. nóvember 2008 klukkan 23:21
Vá, bakið á mér er í svo miklu rugli akkúrat núna...
Vöðvarnir aðeins að hefna sín á því að ég er loksins farin að láta pota aðeins í þá :P Er loksins farin að mæta til sjúkraþjálfara, tvisvar í viku.. Eins gott að ég fái þetta útúr tryggingunum, því mitt litla námsmannaveski er ekki að fara að ráða við 2,300kr tíma tvisvar í viku.. líklegast í laaangan tíma.. Mikið af veseni hjá mér sem þarf að laga.. :P

Sjúkraþjálfarinn er reyndar að byrja rólega, hún sagði mér að ef hún myndi tækla verstu vöðvana strax (þeir sem tognuðu í aftanákeyrslunni) þá myndi ég ekki komast fram úr rúminu daginn eftir.. ég er samt í klessu núna eftir föstudagstímann, gat ekki lyft neinu þungu í morgun því handleggirnir á mér titruðu bara :D En vá hvað ég verð fegin þegar þetta bak mitt lagast smá, mikill léttir sem mun fylgja því :)

Annars er þetta bara róleg helgi hjá okkur, keyrðum í Staðarskála í gær, skiptum á fína Avensisnum okkar sem er búinn að þjóna okkur vel í tæp þrjú ár, og fengum rauða Corollu í staðinn, enginn brjálaður lúkker, en virkar ágætlega og við fengum góða milligjöf með :) Vorum samt svolítið leið að láta bílinn okkar frá okkur, ótrúlegt hvað maður tengist dauðum hlut :P

Ætli maður reyni ekki að taka lestrartörn á morgun, kíkja svo og bóna nýja kaggann eða eitthvað :)

-Benedikta

20.11

20. nóvember 2008 klukkan 21:53
Jæja, ætli maður reyni ekki annað blogg! :D

Dagurinn í dag var alveg frábær! Fengum einkunnina úr aðferðafræðiritgerðinni og haldiði ekki að mín hafi ekki bara náð sér í áttu!? Ég er nú nokkuð sátt með það, sérsatklega þar sem hæsta einkunnin var 8,5 og það var einungis einn sem náði þeirri einkunn, sem setur mig því í 2-7 sæti á einkunnaskalanum :)

Nú er bara að vona að maður frjósi ekki þegar kemur að munnlega lokaprófinu! Held maður þurfi bara að læra eins og vitleysingur fyrir það :)

Annars eru tvær vikur í fyrsta lokaprófið, en prófin hefjast með Fjármunarétti 4.des. svo verður það langþráð jólafrí 16-18.des, en munnlegu prófin í aðferðafræði eru yfir þessa þrjá daga, veit ekki ennþá á hvaða degi ég verð..

Svo verður æðislegt að komast í smá jóla-afslöppun til minna yndislegu foreldra, láta kanski dekra sig aðeins :D Svo er það bara spurning um hvað skuli gera í tilefni afmælisins? Það er nú ekki eins og maður geti haldið voða stóra afmælisveislu hérna í litlu stúdíóíbúðinni okkar :P

Jæja, mikið að gera á morgun, erum líklegast að fara að bruna í Staðarskála, ætlum að hittast og skiptast á bílum við stelpu frá Siglufirði, ætlum að hittast á miðri leið :) Þannig að líklega á morgun munum við vera á Corollu í staðinn fyrir Avensis :) Stuð :)

Læt þetta bull duga í bili,
Benedikta

17.11

17. nóvember 2008 klukkan 22:50
ANDSKOTINN!! Var búin að skrifa langt og fínt blogg.. en akkúrat þegar ég var að leggja lokahönd á meistaraverkið þá strokaðist það út!! Yell

Blöh.. nenni ekki að skrifa það allt aftur núna, redda þessu seinna...

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Veđriđ í Lúx

The WeatherPixie

Innskráningar kubbur